Upplýsingatafla
2. umferðar Íslandsmóts í torfæru 2024
18. maí 2024
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppanda númer 37, Páll Skjóldal Jónsson |
Skjal | 20 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 20:02 |
Dómnefnd barst erindi frá keppnisstjóra um að starfsmaður í pitti hafi alls 7 sinnum staðið sama liðsmann keppanda númer 37, Gísla Magnússon, að því að aka að því er hann taldi, augljóslega langt umfram það sem talist gæti gönguhraði á pittsvæði og uppröðunarsvæði. Í sumum tilfellum hafi aksturinn verið ógætilegur.
Starfsmenn keppninnar hafi veitt liðsmanninum ítrekaða áminningu og lofaði hann að bæta ráð sitt en hélt eftir sem áður uppteknum hætti.
Niðurstaða
Dómnefnd tók málið upp við liðsstjóra keppandans sem gekkst við því að verið gæti að um óþarflega hraðan akstur hafi verið að ræða. Fyrir liggi þó engar mælingar á aksturshraðanum en hjólið sem um ræðir segir hann að geti ekki náð meira en 20 km/klst hraða.
Í keppnisgreinarreglum AKÍS um torfæru er að finna eftirfarandi grein:
3.1.5 Ökutæki skal aldrei ekið hraðar en á gönguhraða á fráteknum svæðum utan þrauta og reynsluaksturssvæðis.
Þar sem mat pittstarfsmanns er að aksturshraði hafi verið meiri en talist gæti gönguhraði og í ljósi þess að aðstoðarmaðurinn mótmælti því ekki að ekið hafi verið of hratt, verður að telja að aðstoðarmaður keppandans hafi í þessu tilfelli brotið keppnisgreinarreglu 3.1.5.
Í Reglubók FIA kemur fram að:
9.15.1 Keppandi ber ábyrgð á gjörðum eða aðgerðaleysi allra einstaklinga sem honum tengjast eða þjóna í tengslum við keppni eða mót, sérstaklega beinum eða óbeinum starfsmönnum, ökumönnum, þjónustuliði, ráðgjöfum, þjónustuveitendum eða farþegum sem og hverjum þeim sem keppandi hefur veitt aðgang að fráteknu svæðunum.
Úrskurður
Keppanda númer 37 er veitt áminning fyrir brot á reglu 3.1.5 í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru á grundvelli reglu 9.15.1 í Reglubók FIA.
Áfrýjun
Keppanda er bent á rétt sinn til að áfrýja úrskurði dómnefndar samkvæmt grein 15 í Reglubók FIA.
Dómnefnd Dómnefnd Dómnefnd
Þorsteinn Jónsson Baldvin Hansson Ásta Andrésdóttir
Formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og ökumanna |
Skjal | 19 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 19:30 |
Tilkynning
Dómnefnd er með til skoðunar mál sem varðar bráðabirgðaúrslit keppninnar. Úrslit keppninnar verða ekki staðfest fyrr en að lokinni meðferð þess máls.
Dómnefnd Dómnefnd Dómnefnd
Þorsteinn Jónsson Baldvin Hansson Ásta Andrésdóttir
Formaður
Frá | Keppnisstjóra |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 18 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 17:12 |
Bráðabirgðaúrslit - Sérútbúnir
Bráðabirgðaúrslit - Sérútbúnir götubílar
Keppnisstjóri
Valdimar Valdimarsson
Frá | Stigaverði |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 17 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 17:11 |
Sérútbúnir - stigin í sjöttu þraut
Sérútbúnir götubílar - stigin í sjöttu þraut
Stigavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Stigaverði |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 16 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 15:57 |
Sérútbúnir - staðan eftir fimmtu þraut
Sérútbúnir götubílar - staðan eftir fimmtu þraut
Stigavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Stigaverði |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 15 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 15:56 |
Sérútbúnir - stigin í fimmtu þraut
Sérútbúnir götubílar - stigin í fimmtu þraut
Stigavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Stigaverði |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 14 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 15:02 |
Sérútbúnir - stigin í fjórðu þraut
Sérútbúnir götubílar - stigin í fjórðu þraut
Stigavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Stigaverði |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 13 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 13:25 |
Sérútbúnir - stigin í þriðju þraut
Sérútbúnir götubílar - stigin í þriðju þraut
Stigavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Stigaverði |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 12 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 12:34 |
Sérútbúnir - stigin í annarri þraut
Sérútbúnir götubílar - stigin í annarri þraut
Stigavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Stigaverði |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 11 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 12:28 |
Sérútbúnir - stigin í fyrstu þraut
Sérútbúnir götubílar - stigin í fyrstu þraut
Stigavörður
Ingimundur Helgason
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og liðstjóra |
Skjal | 10 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 10:50 |
Skýrla frá Ingólfi Arnarsyni skoðunarmanni aði öll keppnistæki fá rásheimild
Dómnefnd Dómnefnd Dómnefnd
Þorsteinn Jónsson Baldvin Hansson Ásta Andrésdóttir
Formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Keppenda númer 69, og ökumanns Daníels Gunnars Ingimundarsonar |
Skjal | 9 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 09:20 |
Atvik á Sindra torfæru AÍNH á Hellu 11. maí 2024
Stjórn AKÍS barst erindi frá keppnisstjóra Sindra torfærunnar þar sem bent er á meint brot ökumanns keppanda númer 69 á fyrirmælum gefnum á keppendafundi. Stjórnin vísaði erindinu áfram til dómnefndar KFC torfærunnar sem tekur það nú fyrir.
Atvikalýsing er með þeim hætti að eftir akstur í fyrstu þraut ók ökutæki #69 frá þrautasvæðinu upp að pittsvæði á hraða sem ekki getur talist gönguhraði með malaraustri og grjótkasti. Bent er á því til staðfestingar, upptöku af útsendingu frá keppninni þar sem, á mínútu 17:45, má sjá umræddan akstur.
Eftir samtal dómnefndar við keppnisstjóra, Kára Rafn Þorbergsson, kemur fram að starfsmenn hans staðfesta að grjót fór í sjúkrabifreið og gekk yfir nærstadda þegar ökutækinu var ekið af þrautasvæðinu.
Eftir skoðun dómnefndar á myndbandsupptökunni telur hún sannað að ökutækinu var á þessum tímapunkti ekið yfir gönguhraða. Að auki má sjá umræddan malaraustur. Ekki er talin ástæða til að rengja frásögn starfsmanna Sindra torfærunnar og því talið ljóst að grjót hefur borist í nærliggjandi ökutæki og yfir starfsfólk og aðra ökumenn.
Í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru segir, í grein:
3.1.5 Ökutæki skal aldrei ekið hraðar en á gönguhraða á fráteknum svæðum utan þrauta og reynsluaksturssvæðis.
Niðurstaða
Dómnefnd úrskurðar, byggt á ofantöldu, að ökumaður keppanda #69, Daníel Gunnar Ingimundarson, hafi brotið reglu 3.1.5 í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir torfæru, með akstri sínum. Með því hafi hann skapað hættu á keppnissvæðinu fyrir nærstadda.
Úrskurður
Ökumaður keppanda #69, Daníel Gunnar Ingimundarson, skal færast niður um eitt sæti í lokaúrslitum torfærukeppni í Íslandsmótinu í torfæru 2024 verði hann uppvís að endurteknu broti á reglu 3.1.5 í keppnisgreinarreglum AKÍS í torfæru. Þennan dóm skal hann taka út í þeirri keppni sem slíkt brot á sér stað, komi til þess, og refsingin því skilorðsbundin út keppnistímabil AKÍS 2024.
Áfrýjun
Keppanda er bent á rétt sinn til að áfrýja úrskurði dómnefndar samkvæmt grein 15 í Reglubókinni.
Dómnefnd Dómnefnd Dómnefnd
Þorsteinn Jónsson Baldvin Hansson Ásta Andrésdóttir
Formaður
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 8 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 08:36 |
Breyting á öryggisfulltrúa og tengilið keppenda
Dómnefnd hefur, að beiðni framkvæmdanefndar, ákveðið að gera eftirfarandi breytingu á starfsmönnum keppninnar.
Hrefna Björnsdóttir og Baldur Gíslason skipta um hlutverk og að lokinni breytingu eru því:
Hrefna Björnsdóttir, öryggisfulltrúi
Baldur Gíslason, tengiliður keppenda
Eftirfarandi breytingar eru því ákveðnar á sérreglum:
Greinar
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Baldur Gíslason.
14.2.4 Tengiliður keppenda er Hrefna Björnsdóttir.
breytast og verða
14.2.3 Öryggisfulltrúi er Hrefna Björnsdóttir.
14.2.4 Tengiliður keppenda er Baldur Gíslason.
Dómnefnd Dómnefnd Dómnefnd
Þorsteinn Jónsson Baldvin Hansson Ásta Andrésdóttir
Formaður
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 7 |
Dagsetning | 18.5.2024 |
Klukkan | 08:32 |
Nöfn staðreyndadómara
Við keppnina starfa eftirtaldir staðreyndadómarar:
Jónas Freyr Sigurbjörnsson, þrautadómari
Örvar Már Mikaelsson, þrautadómari
Gunnar Gunnarsson, þrautadómari
Siddi Ben Sigurgeir, staðreyndadómari og ráslínudómari
Jóna Jakobsdóttir, staðreyndadómari og tímavörður
Guðmundur Viðar, staðreyndadómari og tímavörður í pitti
Framkvæmdanefnd
Ingólfur Arnarson, Ingimundur Helgason, Baldur Gíslason og Valdimar Valdimarsson
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 6 |
Dagsetning | 17.5.2024 |
Klukkan | 22:45 |
Breyting á dagskrá
Dómnefnd hefur, að beiðni keppnisstjóra, ákveðið að gera eftirfarandi breytingu á dagskrá keppninnar í öryggisskyni. Með breytingunni gefst keppendum og ökumönnum lengri tími en áður var gert ráð fyrir til brautarskoðunar.
Keppendafundur og brautarskoðun verða haldin klukkan 9:15.
Dómnefnd Dómnefnd Dómnefnd
Þorsteinn Jónsson Baldvin Hansson Ásta Andrésdóttir
Formaður
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 5 |
Dagsetning | 16.5.2024 |
Klukkan | 19:35 |
Rásröð
Þrautir hafa verið lagðar og dregið hefur verið í rásröð.
Hér að neðan má sjá rásröð í öllum þrautum.
Framkvæmdanefnd
Ingólfur Arnarson, Ingimundur Helgason, Baldur Gíslason og Valdimar Valdimarsson
Frá | Dómnefnd |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 4 |
Dagsetning | 16.5.2024 |
Klukkan | 18:30 |
Breyting á dómnefnd
Dómnefnd, að beiðni framkvæmdanefndar, gerir eftirfarandi breytingu á sérreglum keppninnar. Sigurjón Andersen fer úr dómnefnd og í hans stað tekur sæti Ásta Andrésdóttir.
Sérreglur breytast því þannig:
Grein 14.1.1 var: Dómnefnd skipa: Þorsteinn Jónsson, sem jafnframt er formaður, Baldvin Hansson og Sigurjón Andersen.
Grein 14.1.1 verður: Dómnefnd skipa: Þorsteinn Jónsson, sem jafnframt er formaður, Baldvin Hansson og Ásta Andrésdóttir.
Fyrir hönd dómnefndar
Þorsteinn Jónsson
Formaður
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra keppenda og allra starfsmanna |
Skjal | 3 |
Dagsetning | 16.5.2024 |
Klukkan | 10:10 |
Breyting á ökumanni
Framkvæmdanefnd hefur heimilað eftirfarandi breytingu á ökumanni. Ökutæki með keppnisnúmer 37, Rollan, sem skráð var með ökumann Pál Skjóldal Jónsson verður ekið af Óskari Ólafi Björnssyni.
Framkvæmdanefnd
Ingólfur Arnarson, Ingimundur Helgason, Baldur Gíslason og Valdimar Valdimarsson
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra keppenda |
Skjal | 2 |
Dagsetning | 15.5.2024 |
Klukkan | 23:20 |
Aðgengi að pittsvæði
Keppnishaldari mun gera pittsvæði aðgengilegt keppendum á milli klukkan 19:00 og 21:00 föstudaginn 17. maí næstkomandi. Þá geta þeir sem vilja komið tækjum og búnaði á svæðið. Pitturinn opnar svo klukkan 7:30 á keppnisdag, laugardaginn 18. maí.
Athugið að engin gæsla er á svæðinu og allur búnaður og tæki eru á ábyrgð þeirra sem þau eiga! Jafnframt er rétt að taka fram að svæðinu er lokað með hliði þannig að ekki er hægt að komast að tækjunum eða sækja þau á milli kl. 21:00 á föstudag og 7:30 á laugardag.
Framkvæmdanefnd
Ingólfur Arnarson, Ingimundur Helgason, Baldur Gíslason og Valdimar Valdimarsson
Frá | Framkvæmdanefnd |
Til | Allra keppenda |
Skjal | 1 |
Dagsetning | 15.5.2024 |
Klukkan | 22:45 |
Listi yfir aðstoðarmenn
Samkvæmt grein 3.1.4 í keppnisgreinarreglum AKÍS fyrir Torfæru 2024 mega keppendur hafa allt að átta aðstoðarmenn inni á pittsvæði. Rétt er að minna á að keppandi ber á fulla ábyrgð á aðstoðarmönnum sínum, aðgerðum þeirra og framkomu, alla keppnina.
Til að greiða fyrir aðgöngu aðstoðarmanna á keppnisdag fer keppnishaldari fram á það við keppendur að þeir sendi lista yfir nöfn aðstoðarmanna sinna á netfangið adstodarmenn@racecontrol.is eigi síðar en á hádegi föstudaginn 17. maí 2024. Þeir aðstoðarmenn sem ekki eru á lista mótteknum fyrir þann tíma mega búast við því að einhvern tíma geti tekið fyrir þá að fá aðgang að keppnisvæðinu á meðan staða þeirra er staðfest og þeir skráðir á aðstoðarmannalista viðkomandi keppanda.
Jafnframt þarf að gefa upp nafn liðsstjóra þar sem hann hefur auknar heimildir, umfram aðra aðstoðarmenn, samkvæmt keppnisgreinarreglum.
Gætið að því að í tölvupóstinum þarf að koma skýrt fram fyrir hvaða keppanda hann gildir.
Framkvæmdanefnd
Ingólfur Arnarson, Ingimundur Helgason, Baldur Gíslason og Valdimar Valdimarsson